SKJÁMYND ehf
Kennitala: 650501-3570 Eiðistorgi 13 170 Seltjarnarnes Sími: 561-3233
|
|
Fit-PC2
fit-PC - Minnsta PC-tölva í heimi!
fit-PC tölvan er lítil að utan, en stór að innan. Þetta er fullkomin PC-tölva sem er fáanleg bæði með Windows-XP, Windows-7-Pro eða Linux stýrikerfinu. Tölvan er algjörlega hljóðlaus í vinnslu, þar sem hún inniheldur engar kæliviftur og rafmagnsnotkun er aðeins um 8 wött. Internettenging er bæði um streng eða þráðlaus. 6 USB-tengingar. Þetta er tölva sem hentar jafnt vinnustöðum, skólum, sem heimilum.
 |

Windows 7 Pro
|

Windows XP
|
|
 Linux
|
| |
| |
Markhópur fit-PC? Mismunandi notendahópar kunna að meta fjölbreytilega hæfni fit-PC tölvunnar. Smæð hennar, rafmagnssparnaður, styrkur hennar varðandi högg og titring, auk hæfni hennar fyrir margmiðlunarkerfi gera fit-PC tölvuna frábært tæki fyrir marvísleg ólík notkunarsvið. Allt frá ókyrrum bát út á rúmsjó, sem skráningartölva í hljóðlátu bókasafni, sem margmiðlunartölva heimilisins, sem netþjónn allan sólarhringinn, með upplýsingaskjá, sem bókhaldstölva, og í svo margt fleira hentar fit-PC-tölvan. fit-PC er ekki sérsmíðuð fyrir neitt sérstakt markaðssvið. Hún uppfyllir aftur á móti fjölmarga eiginleika sem fyrst urðu mögulegir með tilkomu örgjörvans Intel Atom Z530. Markmið hönnunarinnar er:
- Lág rafmagnsnotkun
- Engin vifta
- Lítil stærð
- Mikil afkastageta
- Mikil hæfni í margmiðlun
- Allur vélbúnaður og hönnun hæfir atvinnutækjum
- Smekklegt útlit
- Samkeppnishæft verð
Fit-PC tölvan er án kæliviftu Fit-PC2 er án kæliviftu – álkassinn sem tölvan er í dreifir hitanum og gefur nóga kælingu. Þetta hefur tvo kosti í för með sér:
- Fit-PC2 er algjörlega hljóðlaus (engin vifta)
- Aukinn áreiðanleiki þar sem engir hreyfanlegir hlutir eru fyrir hendi.
Fit-PC tölvan er hörku atvinnutæki Fit-PC tölvukassinn er í atvinnutækja flokki, steyptur álkassi með engum loftkæliholum. Kassinn sjálfur er notaður sem kæling. Hæfni Fit-PC2 tölvunar að standast högg, titring og hátt hitastig gera hana að best hæfustu PC-tölvunni fyrir atvinnutæki og notkun í bílum eða skipum. Fit-PC tölvan hentar sem margmiðlunartæki í stofuna Full HD myndupplausn um HDMI tengi (1080P, H.264 afkóðun) og hágæða hljóðupplausn, ekkert bakgrunnsuð vegna viftu eða disks, lítil stærð og stjórnun með IR-þráðlausum búnaði gerir fit-PC tölvuna að fyrirtaks tölvu fyrir margmiðlunina í stofunni þinni. Lítil rafmagnseyðsla og engir slitfletir valda því að hægt er að hafa tölvuna í gangi allan sólarhringinn.
Svarta Fit-PC tölvan er græn vara Fit-PC2 skarar fram úr öllum öðrum tölvum hvað rafmagnssparnað áhrærir.6 wött er meðal aflnotkun tölvunnar í Windows-XP eða Linux vinnslu og fer upp í 8 wött við hámarksálag. Notkun á Fit-PC2 hefur engin skaðleg áhrif á umhverfið og 370g tölvukassinn er svo lítill að umhverfismengun verður í lágmarki þegar hún endar lífdaga sína.
Tækniupplýsingar:
- Örgjörvi Intel Atom Z510/Z530 1,6GHz
- RAM – Innra minni 1 GB DDR2-533
- Gagnaminni 160 GB harður diskur
- Skjáútgangur DVI upp til 1920x1200
- Hljóð Stereo-útgangur, hljóðnema inngangur
- WiFi: 802.11b/g
- Ethernet 1000BaseT RJ45
- USB: 6 USB 2.0 tengingar (Háhraða 480 Mbit/sek)
- Vinnsluspenna 12V DC
|
|